Friday, April 23, 2010

DENIM DENIM & MORE DENIM!!!!

Add ImageÉg er orðin alveg veik fyrir ÖLLU úr denim!
Gallastuttbuxur, kjólar,skyrtur,samfestingar, veski, töskur ! Name IT!

Image and video hosting by TinyPic

Þessar buxur er mjöög ofarlega á óskalistanum núna !
Þær eru frá hinu sænska merki Acne!
Mér finnst þetta geðveikur detaill með appelsínugula leðrinu
,, sýnir að gallabuxur geta verið meira en bara gallabuxur!
Þessar buxur eru virkilega bara flottur piece!

Svo er hér kjóll sem er samvinna Acne og Lanvin fyrir Sumarið 2010..
Hann er úr léttu japönsku gallaefni og að mínu mati must have inn í sumarið!

Image and video hosting by TinyPic

Svo fann ég skemmtilega mynd! Ég er búin að dást af þessum gallabuxum frá Chloé síðan ég sá þær fyrst ! Og hér er bara flat out DIY !!! Um að gera að redda þessu sjálfur bara :)
Image and video hosting by TinyPic


En well að mínu mati þurfa nú allar stelpur að draga fram allt úr gallaefni sem þær eiga og blanda því flott saman við hvítt, floral og jafnvel afríku printin :)


GLEÐILEGT SUMAR!!

-t.
Add ImageAdd Image

Monday, April 19, 2010

toto-africa

Tribal print eru apparently the new flower print!
Tribal er búið að vera mjög áberandi upp á síðkastið, hvort sem það er á pöllunum tískuhúsa fyrir spring/summer 2010, eða úti á götu, og ætti Ísland ekki að verða nein undantekning hvað það varðar. Þetta gildir um allt frá chunky tréhálsmenum og upp í tribal munstraðar harem buxur.


diane von frustenberg


balenciaga


diane von frustenberg


dries van noten


rodarte - takið eftir tattooinu á upphandleggnum á henni. öll módelin fyrir rodarte spring/summer 2010 voru máluð með tribal tattooum. (sem betur fer þó ekki týpískum skinku tribal, eins og við íslendingar erum sekir fyrir að hafa fengið okkur í röðum árið 2001.)




Ég tíndi saman nokkra písa sem ættu (flestir) að vera innan raunhæfra verðmarka.



1. buxur - monki
2. kjóll - topshop
3. skór - urban outfitters
4. kjóll - monki
5. toppur - weekday
6. klútur - oak
7. harem buxur - forever 21
8. stuttbuxur - vivienne westwood
9. sólgleraugu - fredflare.com
10. harem buxur - forever 21



-b

myndir - style.com , jak&jil

Naglalökk!

Ég hef alltaf verið veik fyrir naglalökkum í öllum litum, sérstaklega vegna þess að ég klæðist yfirleitt bara svörtum og hvítum fötum, og langar þá að brjóta upp gotharann í mér með smá litagleði!

Ég raðaði saman nokkrum litum sem ég gæti komið til með að nota í sumar:


























1. mint - hot topic -
2. do you lilac it? - o.p.i
3. paula - make up store
4. cannes - make up store
5. no room for the blues - o.p.i
6. 192 - depend
7. mod about you - o.p.i


Í janúar komu O.P.I líka með Alice in Wonderland collection, í tilefni Tim Burton myndarinnar. Afraksturinn voru glamúr og gleði í krukku, en að mínu mati væri meira notagildi í þessari línu á veturna. Svolítill jóla- og áramótafílingur í þessu, en flott samt sem áður:



absolutely alice


mad as a hatter


off with her head


thanks so muchness

-b